Aðalfundur Bjargráða ehf

Aðalfundur Bjargráða ehf fór fram miðvikudaginn 17. apríl kl:17:00 á Brasserie Kársnes. Níu af tólf eigendum félagsins sóttu fundinn.

Dagskrá var hefðbundin og í samræmi við samþykktir félagsins. Farið var yfir skýrslu stjórnar og  ársreikning félagsins fyrir árið 2023.

Breyting var á stjórn félagsins og er stjórn nú skipuð  með eftirfarandi hætti:

Bjargey Una Hinriksdóttir, formaður

Brynja Guðmundsdóttir, varamaður

Elva Ösp Ólafsdóttir, meðstjórnandi

Halldór Kr. Júlíusson, varamaður

Sigrún Sigurðardóttir, varamaður

Þóra Björk Bjarnadóttir, meðstjórnandi

Stjórn félagsins þakkar Söndru Guðmundsdóttur, sem verið hefur varamaður í stjórn frá stofnun félagsins, fyrir gott starf.

Janframt lét Brynja Guðmundsdóttir af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins um áramót og fær hún þakkir fyrir gott starf. Brynja kemur inn í nýja stjórn sem varamaður.

Formaður þakkar framkvæmdastjórn Bjargráða ehf fyrir óeigingjarnt starf í þágu félagsins árið 2023.

Deildu þessari færslu: