Námskeið

Námskeið í Bjargráðakerfinu Björgu

Upplýsingar varðandi tveggja daga námskeið fyrir fagaðila um Bjargráðakerfið Björgu sem haldið verður 9. og 10. nóvember 2026.


Þjálfunin á námskeiðinu í heild sinni telst til 26 stunda; 10 stundir fyrir fjarnámskeið á vegum Skills system og 16 stundir á námskeiðinu sjálfu.

Innifalið í námskeiðsgjaldinu er:

  • Bókin Emotion Regulation Skills System for the Cognitively Challenged Client: A DBT™-Informed Approach (2026) eftir Julie F. Brown (PhD).
  • Íslenska þýðingu af verkefnahefti bókarinnar.
  • Aðgang að glærum, þýðingum af völdum köflum bókarinnar og vinnublöðum á „mínum síðum“ á vef Bjargráða í eitt ár.
  • Aðgangur að fjarnámskeiðum á vegum Skills system í eitt ár frá og með 1. september.
  • Matur og kaffi á meðan á námskeiðinu stendur. Að loknum námskeiðsdegi á mánudag verða léttar veitingar sem einnig eru innfaldar í námskeiðsgjaldi.

Að námskeiði loknu á þátttakandi að hafa öðlast færni til  markvissra notkunar á bjargráðunum, sem snúa að því að styðja fólk í að takast sjálft á við vanda í daglegu lífi og á kerfistækjum þremur, sem tengjast mati á aðstæðum og notkun bjargráðanna.

Skráning telst staðfest þegar greitt hefur verið fyrir námskeiðsgjald á heimasíðunni. Hvetjum við þátttakendur til að sækja sér styrk hjá stéttarfélagi sínu en að greiðslu lokinni fá þátttakendur senda kvittun frá Bjargráðum ehf í tölvupósti.

Námskeiðsgjald er 159.500 kr.  Ef  þátttakandi hættir við endurgreiðist ekki skráningargjald sem er 23.900 kr.

Þátttakendur á námskeiðinu fá afsláttarkóða fyrir gistingu á Hótel Örk á meðan á námskeiðinu stendur. (Ekki er komið endanlegt tilboð frá Hótel ÖRK varðandi gistingu, mun það verða sett hér inn um leið og það berst).

Ekki er þörf á að vera með tölvu á námskeiðinu en gott er að vera með snjallsíma þar sem við hvetjum þátttakendur til að taka þátt með okkur í gegnum Menti og Kahoot sem fer fram í gegnum símann.

Fræðsla fyrir starfsmannahópa „Bjargráðaliðar“

Markmiðið með fræðslu fyrir starfsmannahópa er að hver og einn starfsmaður geti nýtt aðferðir bjargráðaþjálfunar til að styðja einstaklinga eða hóp við að nota aðferðir Bjargráðaþjálfunar í daglegu lífi.  Fræðslan er fyrir starfsmenn sem ekki hafa farið á Bjargráðanámskeið fyrir fagaðila í Bjargráðakerfinu Björgu.

Farið verður yfir kerfistækin, sívirku Bjargráðin og gildisvirðingu.

Námskeiðið verður í formi fyrirlestra, æfinga og verkefni milli námskeiðsdaga.

Hægt að aðlaga námskeiðið eftir þörfum hverju sinni.

Námskeiðið eru tveir hálfir dagar. Tímalengd 8 klukkustundir.

Endilega hafa samband fyrir frekari upplýsingar.