Námskeið fyrir fagaðila

Um námskeiðið

Hér eru upplýsingar varðandi 2,5 daga námskeið fyrir fagaðila um Bjargráðakerfið Björgu sem haldið var dagana 6.-8. nóvember 2023. Þjálfunin á námskeiðinu í heild sinni telst til 34 stunda; 10 stundir fyrir fjarnámskeið á vegum Skills system og 24 stundir á námskeiðinu sjálfu.   Skráning telst staðfest þegar greitt hefur verið fyrir námskeiðsgjald á heimasíðunni. Hvetjum við þátttakendur til að sækja sér styrk hjá stéttarfélagi sínu en að greiðslu lokinni fá þátttakendur senda kvittun frá Bjargráðum ehf í tölvupósti.   Þátttakendur á námskeiðinu fá afsláttarkóða fyrir gistingu á Hótel Örk á meðan á námskeiðinu stendur. Sjá nánari leiðbeiningar hér að neðan.   Ekki er þörf á að vera með tölvu á námskeiðinu en gott er að vera með snjallsíma þar sem við hvetjum þátttakendur til að taka þátt með okkur í gegnum Menti og Kahoot sem fer fram í gegnum símann. Þátttakendur fá sendar glærur eftir námskeiðið.

Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi?

Fæði meðan á námskeiði stendur; morgunkaffi, hádegismatur og síðdegiskaffi. Einnig hátíðarkvöldverður þann 7. nóvember. Upplýsingar varðandi sérþarfir í mataræði sendast á [email protected].
Handbókin The Emotion Regulation Skills System for Cognitively Challenged Clients: A DBT-Informed Approach eftir Julie F. Brown (2015), afhent á fyrsta námskeiðsdegi.
Verkefnahefti sem notað er í vinnu með skjólstæðingum (PDF-skjal og útprentað)
Aðgangur að fjarnámskeiðum á skillssystem.com. Ætlast er til að þátttakendur ljúki þátttöku á fjarnámskeiðum (Hlutar I og II) áður en námskeiðið hefst. Upplýsingar um aðgang koma frá skillssystem.com í tölvupósti, 24-48 klst. eftir skráningu á námskeiðið, athugaðu vinsamlegast að tölvupósturinn getur lent í ruslpósti (spam folder/junk mail). Ef þú finnur ekki tölvupóstinn eða kemst ekki inn á aðganginn geturðu hakað í 'lost your password?' á þessari slóð: https://members.skillssystem.com/login/, og þá færðu sent nýtt lykilorð og ættir þú þá að komast inn á aðganginn. Ef það virkar ekki ekki hafið samband við okkur sem fyrst.
Þýddur texti um Grunnnámskeið Bjargráðakerfisins Bjargar: Þýðing á texta fjarkennslunámskeiðsins Skills Basics (námskeið 1) sem aðgengilegt er á ensku á heimasíðunni Skillssystem.com.
Þýddur texti um Skills Coaching Strategies (námskeið 2) sem aðgengilegt er á ensku á heimasíðunni Skillssystem.com.
Þýddur texti, kafli 8 úr handbók Julie Brown.
Önnur gögn sem tengjast Bjargráðakerfinu, nánar kynnt á námskeiðinu.

Dagskrá á námskeiði

Hér má sjá dagskrána á námskeiðinu.

8:30 Mæting og skráning

9:00 Þátttakendur boðnir velkomnir, kynning á námskeiðinu o.fl.

10:00 Bjargráðakerfið Björg – fræðilegur bakgrunnur

10:30 Kaffi

10:45 Bjargráðakerfið Björg og 12 skipta þjálfun: Sívirk bjargráð

12:00 – 12:50 Hádegismatur

13:00    Bjargráðakerfið Björg og 12 skipta þjálfun: Sívirk bjargráð

14:30 Kaffi

14:45 Skyndigreining (Quick step assessment)

15:30    Spjaldaleikur

15:45 Samantekt á fyrsta degi

16:00 Lok fyrsta námskeiðsdags

8:45 Mæting og kaffi

9:00 Upprifjun, stöðumat og verkefni dagsins

9:15 Bjargráðakerfið Björg og 12 skipta þjálfun: Bjargráð í hugarró

10:30 Kaffi

10:45 Sex aðferðir gildisvirðingar

Kynningar, sýnikennsla og hlutverkaleikir

12:00 – 12:50 Hádegismatur

13:00 Sex aðferðir gildisvirðingar frh.

Kynningar, sýnikennsla og hlutverkaleikir

14:30    Kaffi

14:45    Hópavinna

15:45 Kynning frá Dr. Julie Brown

16:00 Samantekt á öðrum degi

16:15  Lok annars námskeiðsdags

16:00 – 18:00 Gleðistund á barnum

19:00 Hátíðarkvöldverður

8:45 Mæting og kaffi

9:00 Upprifjun, stöðumat og verkefni dagsins.

9:10 Umgjörð bjargráðaþjálfunar

9:30    Vandamálasmiðjan

10:20  Endurgjöf á námskeiði

10:30 Kaffi

10:45 Vandamálasmiðjan frh.

11:30 – 12.00 Námskeiðslok og samantekt

Leiðbeiningar varðandi bókun á hótelherbergi hjá Hótel Örk

 

  1. Til að bóka herbergi á sérkjörum fyrir Námskeið hjá Bjargráð er smellt á eftirfarandi hlekk: BJARGRAD. Aðrar bókunarsíður virka ekki fyrir kóðann. Öll samskipti fara fram með tölvupóst á [email protected] Afbókun fer fram í afbókunahnapp sem er sendur á skráð netfang með bókunarstaðfestingu við bókun. Við tökum ekki við bókunum né breytingum á bókun í gegnum síma. Ef af einhverjum ástæðum gestir treysta sér ekki til að bóka á heimasíðu okkar með kóða er hægt að bóka með því að senda eftirfarandi upplýsingar á [email protected] Upplýsingar um ábyrgðarmann fyrir bókun: Fullt nafn, fyrstu sex tölur í kennitölu, símanúmer, netfang. Upplýsingar um herbergisgerð (Standard, Superior, Junior Suite o.svo.frv, lengd dvalar, upplýsingar um uppsetningu á herbergi, Hjónarúm, aðskilin rúm(twin), einstaklingsúm.
    Nánari upplýsingar um herbergin má finna á https://hotelork.is/Herbergin/)
  2. Mikilvægt að taka fram í séróskum t.d ef óskað er eftir aðskildu rúmi. Taka fram hvort allt sé á einn reikning hjá einstaklingi? Fyrirtæki/stofnun? Upplýsingar um greiðanda reiknings ef það á við: Nafn einstaklings / fyrirtækis / stofnunar, kennitala, heimilsfang.
  3. Ýtið á VELJA:
  4. Gengið er frá bókun, mikilvægt að allar upplýsingar séu rétt útfylltar. Ýtið á staðfesta bókun (BOOK). Tekið er við greiðslu á staðnum fyrir herbergi. Við tökum ekki af korti við bókun.

Undirbúningur fyrir námskeið

Ætlast er til að þátttakendur ljúki þátttöku á fjarnámskeiðum (hlutar I og II) áður en námskeiðið hefst. Áætlað er að það taki um 8 klst. að taka fjarnámskeiðin; horfa á myndbönd (hægt að hafa íslenskan texta) og svara námsmati þeim tengt (krossaspurningar úr námsefninu í lok hvers myndbands). Hægt er að vinna undirbúninginn á þeim hraða sem hverjum hentar. Ekki er verið að meta árangur á námsmati heldur er það einungis ætlað til að auðvelda þátttakendum að festa upplýsingar í minni og kynnast Bjargráðakerfinu Björgu fyrir námskeiðið.

Fjarnámskeiðin/myndböndin skiptast í tvo hluta: Hluti 1 snýr að því að kenna Bjargráðin níu, og hluti 2 snýr að því að kenna fagaðilum Gildisvirðingu og meginaðferðir Díalektískrar atferlismeðferðar (DAM) við notkun á Bjargráðakerfinu Björgu.

Óskum við eftir því að þátttakendur sendi staðfestingu á bjargrad@bjargradakerfi með staðfestingu á því að fjarnámskeiðum hefur verið lokið. Ýtt er á ‚PRINT YOUR CERTIFICATE‘, skjölin tvö eru vistuð sem PDF-skjöl og síðan send á okkur.

135.000 kr.
Ef eitthvað óvænt skyldi koma upp á og þátttakandi þarf að hætta við þátttöku þarf að tilkynna það a.m.k. viku fyrir námskeiðið til þess að fá endurgreiðslu (aðhugið að skráningargjald dregst frá).
Um námskeiðið:
Undirbúningstími:

10 klst.

Þátttakendafjöldi:

80

Tímalengd:

24 stundir

Niðurhalanlegar skrár:

Other course

Mobile App Development

Lorem ipsum dolor sit amet, contetur adicing elit. Ut elit tellus.

Web Design and Development

Lorem ipsum dolor sit amet, contetur adicing elit. Ut elit tellus.

Mastering Architecture for Beginners

Lorem ipsum dolor sit amet, contetur adicing elit. Ut elit tellus.