Námskeið fyrir fagaðila

Um námskeiðið

Hér eru upplýsingar varðandi tveggja daga námskeið fyrir fagaðila um Bjargráðakerfið Björgu sem haldið verður 10. og 11. nóvember 2025. Þjálfunin á námskeiðinu í heild sinni telst til 26 stunda; 10 stundir fyrir fjarnámskeið á vegum Skills system og 16 stundir á námskeiðinu sjálfu. Skráning telst staðfest þegar greitt hefur verið fyrir námskeiðsgjald á heimasíðunni. Hvetjum við þátttakendur til að sækja sér styrk hjá stéttarfélagi sínu en að greiðslu lokinni fá þátttakendur senda kvittun frá Bjargráðum ehf í tölvupósti. Þátttakendur á námskeiðinu fá afsláttarkóða fyrir gistingu á Hótel Örk á meðan á námskeiðinu stendur. (Ekki er komið endanlegt tilboð frá Hótel ÖRK varðandi gistingu, mun það verða sett hér inn um leið og það berst). Ekki er þörf á að vera með tölvu á námskeiðinu en gott er að vera með snjallsíma þar sem við hvetjum þátttakendur til að taka þátt með okkur í gegnum Menti og Kahoot sem fer fram í gegnum símann.

Hvað er innifalið í námskeiðsgjaldi?

Fæði meðan á námskeiði stendur; morgunkaffi, hádegismatur og síðdegiskaffi. Upplýsingar varðandi sérþarfir í mataræði sendast á bjargrad@bjargradakerfi.is.
Handbókin The Emotion Regulation Skills System for Cognitively Challenged Clients: A DBT-Informed Approach eftir Julie F. Brown (2015), afhent á fyrsta námskeiðsdegi.
Verkefnahefti sem notað er í vinnu með skjólstæðingum (PDF-skjal og útprentað)
Aðgangur að fjarnámskeiðum á skillssystem.com. Ætlast er til að þátttakendur ljúki þátttöku á fjarnámskeiðum (Hlutar I og II) áður en námskeiðið hefst. Upplýsingar um aðgang koma frá skillssystem.com í tölvupósti í byrjun október. Ef þú finnur ekki tölvupóstinn eða kemst ekki inn á aðganginn geturðu hakað í 'lost your password?' á þessari slóð: https://members.skillssystem.com/login/, og þá færðu sent nýtt lykilorð og ættir þú þá að komast inn á aðganginn. Ef það virkar ekki ekki hafið samband við okkur sem fyrst.
Þýddur texti um Grunnnámskeið Bjargráðakerfisins Bjargar: Þýðing á texta fjarkennslunámskeiðsins Skills Basics (námskeið 1) sem aðgengilegt er á ensku á heimasíðunni Skillssystem.com.
Þýddur texti um Skills Coaching Strategies (námskeið 2) sem aðgengilegt er á ensku á heimasíðunni Skillssystem.com.
Þýddur texti, kafli 8 úr handbók Julie Brown.
Önnur gögn sem tengjast Bjargráðakerfinu, nánar kynnt á námskeiðinu.

Dagskrá á námskeiði

8:30       Skráning

9:00       Þátttakendur boðnir velkomnir
Kynning á námskeiðinu o.fl.
Hópefli

10:30 -10.45    Kaffi

Bjargráðakerfið Björg – fræðilegur bakgrunnur

Kerfistækin og skipulag bjargráðakerfisins

Flokkar bjargráða

Tilfinningamælir

Bjargráðakeðjur

Skýr mynd

Sýnikennsla og hlutverkaleikur  

Umgjörð bjargráðaþjálfunar

12:00 – 12:50     Hádegismatur

Markmiðssetning

Kennsluaðferðir

14:30 – 14.45    Kaffi

Kennsluaðferðir

Skyndigreining

Sýnikennsla

Samantekt á fyrsta degi

17:00    Lok fyrsta námskeiðsdags

17:00   Gleðistund á barnum

8:45       Mæting og kaffi

9:00       Upprifjun, stöðumat og verkefni dagsins

Gildisvirðing og sex aðferðir gildisvirðingar

10:30 – 10.45  Kaffi

Sýnikennsla og hlutverkaleikur

12:00 – 12:50   Hádegismatur

Vandamálasmiðja

Innleiðing Bjargráðkerfisins á vinnustað

Endurgjöf á námskeið

15:00   Námskeiðsloks

Vinsamlegast athugið að dagskráin getur riðlast til

Leiðbeiningar varðandi bókun á hótelherbergi hjá Hótel Örk

Viðburðarkóðinn BJARGRAD er nú virkur og hægt að bóka gistingar með honum á www.hotelork.is.

Skilmálar bókunar:
Gisting skal bókuð og staðfest að minnsta kosti 21 dögum fyrir viðburð.

Óbókuð herbergi fara í almenna sölu eftir þann tíma.

Kóðinn/hlekkurinn gildir aðeins fyrir bókanir í gegnum heimasíðu Hótel Arkar: www.hotelork.is.

Herbergjaskipan:
Við bókun þarf að taka fram óskir um herbergjaskipan í reitinn „Special request for your extras“, t.d.:

Hjónarúm / Aðskilin rúm (twin) / Einstaklingsrúm

Mikilvægt:
Ef par gistir saman nægir að skrá eitt nafn.
Ef óskyldir aðilar deila herbergi, þarf að skrá bæði nöfnin.

Við biðjum jafnframt um fullt nafn gests og nafn stofnunar sem hann tilheyrir.

Greiðslufyrirkomulag:

Greiðslufyrirkomulag skal tekið fram í reitinn „Special request for your extras“ við bókun.

Ef slíkar upplýsingar berast ekki, gerum við ráð fyrir að greiðsla fari fram við komu.

Ef óskað er eftir því að reikningur fyrir þjónustu sé sendur á fyrirtæki eða stofnun þarf að vera búið að ganga frá samkomulagi um það fyrir komu.

Ekki er hægt að óska eftir reikningsviðskiptum á staðnum.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum, hafið samband við okkur í gegnum booking@hotelork.is

Undirbúningur fyrir námskeið

Ætlast er til að þátttakendur ljúki þátttöku á fjarnámskeiðum (hlutar I og II) áður en námskeiðið hefst. Áætlað er að það taki um 8 klst. að taka fjarnámskeiðin; horfa á myndbönd (hægt að hafa íslenskan texta) og svara námsmati þeim tengt (krossaspurningar úr námsefninu í lok hvers myndbands). Hægt er að vinna undirbúninginn á þeim hraða sem hverjum hentar. Ekki er verið að meta árangur á námsmati heldur er það einungis ætlað til að auðvelda þátttakendum að festa upplýsingar í minni og kynnast Bjargráðakerfinu Björgu fyrir námskeiðið.

Fjarnámskeiðin/myndböndin skiptast í tvo hluta: Hluti 1 snýr að því að kenna Bjargráðin níu, og hluti 2 snýr að því að kenna fagaðilum Gildisvirðingu og meginaðferðir Díalektískrar atferlismeðferðar (DAM) við notkun á Bjargráðakerfinu Björgu.

Óskum við eftir því að þátttakendur sendi staðfestingu á bjargrad@bjargradakerfi með staðfestingu á því að fjarnámskeiðum hefur verið lokið. Ýtt er á ‚PRINT YOUR CERTIFICATE‘, skjölin tvö eru vistuð sem PDF-skjöl og síðan send á okkur.

149.500 kr.

Skráningu er lokið

Ef eitthvað óvænt skyldi koma upp á og þátttakandi þarf að hætta við þátttöku þarf að tilkynna það a.m.k. viku fyrir námskeiðið til þess að fá endurgreiðslu (aðhugið að skráningargjald dregst frá).
Um námskeiðið:
Undirbúningstími:

10 klst.

Þátttakendafjöldi:

50

Tímalengd:

16 stundir

Niðurhalanlegar skrár:

Other course

Mobile App Development

Lorem ipsum dolor sit amet, contetur adicing elit. Ut elit tellus.

Web Design and Development

Lorem ipsum dolor sit amet, contetur adicing elit. Ut elit tellus.

Mastering Architecture for Beginners

Lorem ipsum dolor sit amet, contetur adicing elit. Ut elit tellus.