Námskeið

Námskeið í Bjargráðakerfinu Björgu

Námskeið fyrir fagaðila í Bjargráðakerfið Björgu verður haldið á Hótel Örk  dagana 9. 0g 10. nóvember 2026.

Skráning hefst 15. maí næstkomandi.  Ef þú vilt fá frekari upplýsingar þegar skráning hefst, er gott að skrá sig á póstlistann hér til hliðar.

Fræðsla fyrir starfsmannahópa „Bjargráðaliðar“

Markmiðið með fræðslu fyrir starfsmannahópa er að hver og einn starfsmaður geti nýtt aðferðir bjargráðaþjálfunar til að styðja einstaklinga eða hóp við að nota aðferðir Bjargráðaþjálfunar í daglegu lífi.  Fræðslan er fyrir starfsmenn sem ekki hafa farið á Bjargráðanámskeið fyrir fagaðila í Bjargráðakerfinu Björgu.

Farið verður yfir kerfistækin, sívirku Bjargráðin og gildisvirðingu.

Námskeiðið verður í formi fyrirlestra, æfinga og verkefni milli námskeiðsdaga.

Hægt að aðlaga námskeiðið eftir þörfum hverju sinni.

Námskeiðið eru tveir hálfir dagar. Tímalengd 8 klukkustundir.

Endilega hafa samband fyrir frekari upplýsingar.