
Aðalfundur Bjargráða ehf fór fram miðvikudaginn 15. apríl kl:17:00 á Brasserie Kársnes. Átta af tólf eigendum félagsins sóttu fundinn.
Dagskrá var hefðbundin og í samræmi við samþykktir félagsins. Farið var yfir skýrslu stjórnar og ársreikning félagsins fyrir árið 2024.
Stjórn félagsins helst óbreytt á milli ára og er skipuð eftirfrandi eigendum.
Bjargey Una Hinriksdóttir, formaður
Brynja Guðmundsdóttir, varamaður
Elva Ösp Ólafsdóttir, meðstjórnandi
Halldór Kr. Júlíusson, varamaður
Sigrún Sigurðardóttir, varamaður
Þóra Björk Bjarnadóttir, meðstjórnandi
Formaður þakkar framkvæmdastjórn Bjargráða ehf fyrir ötulegt starf í þágu félagsins árið 2024.