Námskeið fyrir fagaðila í Bjargráðakerfinu Björgu 13.-15. nóvember 2024

Dagana 13.-15. nóvember 2024 verður haldið 2,5 daga námskeið fyrir fagaðila í Bjargráðakerfinu Björgu á Hótel Örk, Hveragerði. Skráning er hafin hér: https://bjargradakerfi.is/checkout/?swcfpc=1.

Bjargráðakerfið Björg (Skills System) er gagnreynd aðferð til að ná tökum á tilfinningastjórn og byggir á níu bjargráðum og árangursríkri viðtalstækni. Aðferðin byggir á díalektískri atferlismeðferð (Dialectical Behavior therapy, DAM/DBT) og er þróuð til að gagnast jaðarsettum hópum sem hafa átt erfitt með að nýta sér hefðbundna nálgun. Bjargráðakerfið Björg nýtist bæði börnum og fullorðnum. Námskeiðið byggir á fræðslu, sýnikennslu og æfingum

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem vinnur í velferðarþjónustu, geðheilbrigðisþjónustu, starfsendurhæfingu og mögulega á öðrum starfsvettvangi sem starfar með fólki, ungum sem öldnum.  Námskeiðið samsvarar 24 kennslustundum auk 10 kennslustundum í undirbúningsvinnu þar sem þátttakendur taka tvö fjarnámskeið.

Vonumst til að sjá sem flesta!

Fyrirspurnir varðandi námskeiðið er hægt að senda á [email protected].

Deildu þessari færslu: